Sony Xperia Z3 Plus - Myndavélarstillingar

background image

Myndavélarstillingar

Til að stilla ljósmyndavélastillingar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á til að birta allar stillingar.

3

Veldu stillinguna sem þú vilt breyta og breyttu að vild.

Yfirlit yfir stillingar myndavélar

Upplausn

Veldu upplausn og hlutfall áður en mynd er tekin. Mynd með meiri upplausn þarf meira

minni.

20.7MP

5248×3936(4:3)

20,7 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í

mikilli upplausn.

15.5MP

5248×2952(16:9)

15,5 megapixla mynd í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.

8MP

3264×2448(4:3)

8 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í mikilli

upplausn.

8MP

107

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

3840×2160(16:9)

8 megapixla mynd í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.

3MP

2048×1536(4:3)

3 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í mikilli

upplausn.

2MP

1920×1080(16:9)

2 megapixla mynd í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

Tímastillir

Með tímastillinum er hægt að taka mynd án þess að halda á tækinu. Notaðu þennan

eiginleika til að taka sjálfsmyndir eða hópmyndir þar sem allir geta verið á myndinni. Þú

getur einnig notað tímastilli ef þú vilt koma í veg fyrir að myndavélin hristist í myndatöku.

10 sek.

Veldu 10 sekúndna bið frá því að pikkað er á afsmellarann eða ýtt á myndavélarhnappinn.

3 sek.

Veldu 3 sekúndna bið frá því að pikkað er á afsmellarann eða ýtt myndavélarhnappinn.

Slökkt

Mynd er tekin um leið og þú pikkar á afsmellarann eða ýtir á myndavélarhnappinn.

Áhrifin Mjúk húð

Þú getur kveikt á

Mjúk húð í tækinu til að mýkja húðlit lítillega þegar þú tekur sjálfsmyndir

í tökustillingunum

Handvirkt og Öflugri sjálfvirkni.

Hlut fylgt eftir

Þegar þú velur hlut með því að snerta hann í myndglugganum fylgir myndavélin honum

fyrir þig.

HDR

Notaðu HDR (hátt virkt svið) stillinguna til að taka mynd á móti sterkri baklýsingu eða við

aðstæður þar sem birtuskilin eru skörp. HDR bætir upp fyrir tapið á smáatriðum og skilar

mynd sem sýnir bæði dökk og ljós svæði.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt .

ISO

Þú getur dregið úr óskýrleika sem stafar af slæmum lýsingarskilyrðum og hreyfingu á

myndefni með því að auka ISO-næmi. Og viljirðu taka bjarta mynd við slæm

lýsingarskilyrði geturðu stillt ISO-næmi á hærra gildi.

Sjálfvirkt

Stillir ISO-næmi sjálfkrafa.

50

Stillir ISO-næmi í 50.

100

Stillir ISO-næmi í 100.

200

Stillir ISO-næmi í 200.

400

Stillir ISO-næmi í 400.

800

Stillir ISO-næmi í 800.

108

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

1600

Stillir ISO-næmi í 1600.

3200

Stillir ISO-næmi í 3200.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

Mæling

Þessi eiginleiki ákvarðar sjálfkrafa rétta lýsingu með því að mæla magn ljóssins í mynd

sem á að taka.

Andlit

Mælir magn ljóss á andliti og stillir lýsingu þannig að andlitið sé hvorki of dökkt né of ljóst.

Margfalt

Skiptir myndinni í mörg svæði og mælir hvert svæði og ákvarðar jafna lýsingu.

Miðjun

Mælir miðju myndarinnar og ákvarðar lýsingu byggt á birtustigi myndefnisins þar.

Punktur

Stillir lýsingu á mjög litlum hluta myndarinnar sem þú vilt taka.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

Flass

Notaðu flassið til að taka myndir þegar lýsing er léleg eða myndefni er baklýst. Eftirfarandi

valkostir eru í boði þegar þú pikkar á flasstáknið á myndavélarskjánum:

Sjálfvirkt

Myndavélin velur sjálfkrafa hvort lýsingaraðstæður kalla á notkun flass.

Fylliflass

Notaðu þessa stillingu þegar bakgrunnurinn er bjartari en myndefnið. Þessi stilling kemur í veg fyrir

óæskilega dökka skugga.

Laga rauð augu

Dregur úr rauðum lit í augum þegar tekin er mynd.

Slökkt

Slökkt er á flassinu. Stundum geta myndgæði verið betri án flass, jafnvel þótt birtuskilyrði séu léleg.

Stöðug hönd er forsenda töku góðra mynda án flass. Notaðu tímastillingu til að forðast að myndir verði

óskýrar.

Vasaljós

Flassið lýsir stöðugt á meðan myndir eru teknar.

Val á umhverfisstillingu

Umhverfisstilling gerir þér kleift að setja upp myndavélina á fljótlegan hátt fyrir algengar

aðstæður með því að nota forstilltar umhverfisstillingar. Myndavélin velur stillingar sem

passa við valið umhverfi, til að tryggja bestu mögulegu myndina.

Slökkt

Slökkt er á umhverfisstillingu og þú getur tekið myndir handvirkt.

Mjúk húð

Taktu andlitsmyndir með ýktum fegurðaráhrifum.

Mjúk smella

Notað fyrir töku mynda með mjúkum bakgrunni.

Óskýrleikavörn

Notað til að lágmarka hristing þegar tekið er í rökkri.

Landslag

Notað fyrir landslagsmyndir. Myndavélin stillir fókus á fjarlæga hluti.

109

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Baklýsingar-leiðréttingar-HDR

Notað til að bæta smáatriði í myndum með miklum birtuskilum. Innbyggða baklýsingarleiðréttingin

metur myndina og stillir hana sjálfkrafa til að lýsa myndina rétt.

Andlitsmynd að nóttu

Notað þegar andlitsmyndir eru teknar að nóttu til eða í dauflýstu umhverfi. Vegna langs lýsingartíma

verður að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu yfirborði.

Næturmynd

Notað þegar myndir eru teknar að nóttu til eða í dauflýstu umhverfi. Vegna langs lýsingartíma verður

að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu yfirborði.

Handstýrð ljósaskipti

Notað til að taka dauflýstar myndir og draga úr suði og þoku.

Mikið ljósnæmi

Notað til að taka myndir án flass í dauflýstu umhverfi. Dregur úr þoku.

Matur

Notað til að taka myndir af mat í björtum litum.

Gæludýr

Notað til að taka myndir af gæludýrum. Dregur úr þoku og rauðum augum.

Strönd

Notað til að taka myndir af umhverfi við sjó eða vatn.

Snjór

Notað í björtu umhverfi til að koma í veg fyrir yfirlýstar myndir.

Partí

Notað við töku af myndefni í illa lýstu umhverfi innandyra. Þetta umhverfi nemur bakgrunnsljós eða

kertaljós innandyra. Vegna langs lýsingartíma verður að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu

yfirborði.

Íþróttir

Notað við töku af myndefni á mikilli hreyfingu. Stuttur lýsingartími dregur úr óskýrleika vegna hreyfingar.

Skjal

Notað fyrir myndir af texta eða teikningum. Gefur myndinni skarpari birtuskil.

Flugeldar

Notað til að taka myndir af flugeldum í allri sinni dýrð.

Þessar stillingar eru einungis í boði í

Handvirkt tökustillingunni.