Sony Xperia Z3 Plus - Margir notendareikningar

background image

Margir notendareikningar

Tækið þitt styður marga notendareikninga þannig að mismunandi notendur geta skráð

sig inn á tækið og notað það. Margir notendareikningar eiga vel við ef þú deilir tæki með

öðrum eða lánar öðrum tækið um stundarhríð. Notandinn sem stillir tækinu upp í fyrsta

sinn verður eigandi tækisins. Aðeins eigandinn getur haft umsjón með reikningum annarra

notenda. Tvær gerðir reikninga eru í boði, utan eigandareiknings:

Reglulegur notandi: Þessi gerð hentar þeim sem notar tækið þitt reglulega.

Gestanotandi: Virkjaðu þennan möguleika fyrir þá sem nota tækið þitt tímabundið.

Sumir eiginleikar eru aðeins í boði fyrir eigandann. Til dæmis getur aðeins eigandinn leyft

niðurhal frá öðrum stöðum en Google Play™.

Um reikning reglulegra notenda

Með því að bæta við reikningum reglulegra notenda getur hver notandi haft sinn

heimaskjá, veggfóður og almennar stillingar. Þeir fá líka sinn aðgang að forritum og

minnisgeymslu fyrir skrár, t.d. fyrir tónlist og myndir. Hægt er að hafa allt að þrjá reikninga

fyrir reglulega notendur í tækinu.

66

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Venjulegum notandareikningi bætt við

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi, það er, notandinn sem

setti tækið upp í fyrsta sinn.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur > Bæta notanda við.

4

Pikkaðu á

Í lagi > SETJA UPP NÚNA. Skjárinn læsist og tákn fyrir nýja notandann

birtist efst í hægra horninu.

5

Opnaðu skjáinn, t.d. með því að strjúka eða slá inn PIN-númerið.

6

Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til þess að ljúka aðgerðinni.

Þú getur líka bætt við venjulegum notandareikningi á stöðustiku allra skjáa. Dragðu bara

stöðustikuna niður með tveimur fingrum, pikkaðu á notandatáknið og svo á

Bæta notanda við.

Reglulegum notanda leyft að hringja og senda SMS

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur.

4

Pikkaðu á við hliðina á viðkomandi notanda og dragðu svo sleðann við hliðina á

Kveikja á símtölum og SMS til hægri.

Venjulegum notandareikningi eytt úr tækinu

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi.

2

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur.

4

Pikkaðu á við hliðina á nafni notandans sem þú vilt eyða og svo á

Fjarlægja

notanda > Eyða .

Um reikning gestanotenda

Ef einhver notar tækið bara tímabundið er hægt að búa til gestareikning fyrir viðkomandi

notanda. Í gestastillingu ræsist tækið í upphafsástandi kerfisins þar sem aðeins eru forrit

sem eru fyrirfram uppsett. Þegar gesturinn er hættur að nota tækið er hægt að hreinsa

lotuna svo næsti gestur geti byrjað frá grunni. Reikningur gestanotanda er fyrirfram

uppsettur og ekki er hægt að eyða honum.

Gestareikningur virkjaður

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi, það er notandinn sem

setti tækið upp í fyrsta sinn.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur > Gestur.

Þú getur líka virkjað gestareikning á stöðustiku allra skjáa. Dragðu bara stöðustikuna niður

með tveimur fingrum, pikkaðu á notandatáknið og svo á

Bæta við gesti.

Gestanotanda leyft að hringja

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur.

4

Pikkaðu á við hliðina á

Gestur og dragðu svo sleðann við hliðina á Kveikja á

símtölum til hægri.

Gögn gestalotu hreinsuð

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem gestanotandi.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur.

4

Finndu og pikkaðu á

Fjarlægja gest.

5

Pikkaðu á

Fjarlægja.

Þú getur líka hreinsað gestalotuna á stöðustiku allra skjáa. Dragðu bara stöðustikuna niður

með tveimur fingrum, pikkaðu á notandatáknið og svo á

Fjarlægja gest.

67

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Skipt á milli margra notendareikninga

Skipt á milli margra notendareikninga

1

Dragðu stöðustikuna niður með tveimur fingrum til að sjá notendalistann og

pikkaðu á notendatáknið efst í hægra horni skjásins.

2

Pikkaðu á táknið fyrir notandareikninginn sem þú vilt skipta yfir í.

3

Ef lykilorð hefur verið stillt fyrir reikninginn slærðu það inn til að skrá þig inn. Annars

tekurðu skjáinn bara úr lás.

Þegar þú skiptir yfir í gestareikninginn pikkarðu á

Byrja aftur ef þú vilt hreinsa síðustu lotu eða

pikkar á

Já, halda áfram til að halda áfram í fyrri lotu.

Stillingar fyrir marga notendareikninga

Þrenns konar stillingar eru í boði fyrir tæki með marga notendur:

Stillingar sem allir notendur geta breytt og hafa áhrif á alla notendur. Sem dæmi má nefna

tungumál, Wi-Fi, flugstillingu, NFC og Bluetooth®.

Stillingar sem aðeins hafa áhrif á einstaka notendareikninga. Sem dæmi má nefna

sjálfvirka samstillingu gagna, skjálás, reikninga sem bætt er við og veggfóður.

Stillingar sem aðeins eru sýnilegar eigandanum og hafa áhrif á alla notendur, t.d. VPN-

stillingar.

68

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.